Hola!!!

sunnudagur, september 23, 2007

Búin að setja inn helling af myndum

Heil og Sæl,
Ég er búin að vera rosalega dugleg og setja inn helling af myndum þ.e af Verslunarmannahelginni, Benedorm og frá Árshátíð Landvara sem var í gærkvöldi ;)
Það var mikið stuð og mikið gaman... er alveg að pæla að taka mér smá blogg pásu er ekki alveg að nenna þessu núna...
Kannski maður komi fílefldur til baka seinna í haust eða vetur ;)
Rosie OUT

mánudagur, september 10, 2007

Styttist í Réttir

Já þetta er alveg rétt hjá þér Fríður!! ég þarf að blogga... Er bara búin að vera í sumarfríi og hef og ekki nennt að blogga í þvi hehe ;)
Já Kjéllan er að fara í fyrsta skiptið í alvöru Réttir. Búin að vera að æfa mig í allt sumar að reka rollur ;) búin að læra þetta ;) Baða vel út höndunum og segja svo ho ho!! var þaggi María og Fríður? hehe.
Var á Versló Reunioni á Laugardagskvöldið! mikið gaman mikið stuð ;) Rosalega skemmtilegt að hitta alla. Marga hafði maður bara ekki hitt í 5 ár.
Jæja nóg í bili læt vita hvernig réttirnar fóru hehe ;) Set inn myndir svo við tækifæri.
Já annað Hann Oliver hefur það bara gott allt að koma hjá honum er að læra nafnið sitt og svona ;) mikið gaman og mikið stuð á okkur ;)
Eníhú Rosie OUT!

mánudagur, ágúst 13, 2007

Styttist í Benidorm

Hola!
Já já kjéllan er komin heim úr Eyjaferð. Mikið rosalega var þetta gaman. Mikið stuð í Eyjum það get ég sagt ykkur. Við Laurie erum meira segja búinar að redda okkur gistingu í Eyjum fyrir næst ár! Öss hvað það var mikið stuð. Hendi inn myndum við tækifæri, þ.e. þær sem eru birtingahæfar hehe.. Setning helgarinnar var : Hver á að gera það ? HA Á ég að gera það???? eða í álverinu.... eða jafnvel ertu ekki að grennast?
Hreint út sagt gargandi snilld.
Núna styttist óðum í sumarfríið mitt... Já er pínu seinþroska í þessu hehe. Þegar aðrir eruð að klára sumarfríið sitt fer ég í mitt.
Við Laurie, Hlynur og Mary Ann ætlum að skella okkur til Benidorm í rúma 10 daga. ohh hvað það varður yndislegt. Get hreinlega ekki beðið.
Strax og ég kem heim fer ég og næ í hann Oliver og þá flytur hann til mín ;) En Oliver er hvlolpur sem ætlar að búa hjá mér um ókomin ár ;)
Jæja þetta er nóg í bili
Rosie OUT!

þriðjudagur, júlí 31, 2007

Sumarið að Klárast


Öss núna er sumarið bara alveg að klárast. Sólin farin á bak við skýin!

Á góðri Stund er búin frábær helgi í alla staði... Við María Ósk tókum okkur til og endurtókum sjómannadagshelgina.. Bara þrjú kvöld í röð... enda er maður bara ný orðin átján og því með gott úthald í svoleiðis svaðilfarir hehe ;)

Verslunarmannahelgin bara um næstu helgi... Og Kjéllan er að fara til Eyja!!!!!!!! Össs.... Já hef aldrei farið á Þjóðhátíð og hef ekki haft mikla löngun til þess þar til núna. Þá verður líka skellt sér hehe..
En þar sem þetta er bara í fyrsta skipti er bara farið "mini" ferð förum á hádeigi með Herjólfi á laugardaginn og fljúgum heim aftur til Rvk. á Mánudagsmorgun ;)

Verður vonandi mikið stuð og mikið gaman ;)

Þar til næst

Rosie OUT!

miðvikudagur, júní 27, 2007

Sumarfrí

Nú er sumarið komið. Sólin farin að láta sjá sig ansi oft svo maður er ekki alveg að nenna að kveikja á tölvunni þegar maður kemur heim úr vinnunni! Því hef ég tekið þá ákvörðun að taka blogg frí eins og allir frægu og mest lesnu bloggarnir... maður má víst ekki vera minni en þeir hehe ;)

Annars er allt gott að frétta. Mákona mín Hún Guðrún Hrönn átti afmæli á laugardaginn og var smá game hjá henni fámennt en góð mennt... Svaka gaman... Ótrúlegt en satt gleymdi ég myndavélinni minn í Grundó Sitý þannig að engar myndir voru teknar.

Stefna tekin á útilegu um næstu helgi... Ætla að muna eftir myndavélinni núna hehe..
Þó svo ég sé búin að taka mér smá frí á bloggi getur vel verið að ég setji inn myndir við tækifæri. Læt þá vita af því ;)

Hafið það gott í sumar og gangið hægt um gleðinnar dyr.

Rosie OUT!

þriðjudagur, júní 05, 2007

Sumarið!!!


Jæja nú er sumarið komið!!

Það er alltaf sumarboði þegar allir sjónvarpsþættirnir eru búinir! 24, Heroes, Greys, Las Vegas, Supernatural, og jú name it allir komnir í sumarfrí!

Hvað er þá til bragðs... Mér dettur bara tvennt í hug:
1. Fara Erlendis
2. Fara í útilegu
Vonandi get ég gert bæði í sumar!

Varð bara að deila þessu með ykkur
Rosie OUT!

mánudagur, júní 04, 2007

Fyrsta "alvöru" helgin búin

Já þá er sjómannadagshelgin búin! mikið stuð mikið gaman hehe ;)

Helgin byrjaði rólega þ.e á fimmtudagskvöldið, var í matarboði og það var bara æðislegt! á föstudaginn var svo míni partý á Grundargötu 69 og svo skellt sér á ball! Fannst ekkert svo margir hafa mætt á ball! En þegar litið var út um gluggann þá sá maður er margir hefðu mætt á ballið hehe! Reykingabannið mikla sem sag komið!

Laugardagurinn var fínn!! Svaka stuð á höfninni... Fótboltaleikurinn.... Starfsmannapartý hjá Ragnar og Ásgeir ehf... Svo náttlega ball ;) Var orðin nokkuð þreytt eftir mikið stuð um daginn og dagana áður Svo Rosie var komin heim kl. 3.


Laurie & Mary Ann komu og upplifðu alvöru sjómannadag! komu á laugardaginn... Alltaf jafn yndislegt að fá þær í Nafla Alheimsins!

En frábær helgi! Gleymdi nú myndavélinni því nú ver og miður fæ kannski myndir frá einhverjum öðrum sé til ;)

Rosie OUT!