Hola!!!

þriðjudagur, maí 18, 2004

Þriðjudagur

JÆJA... Allt er gott sem endar vel... ég er búin að sitja sveitt og læra undir helv** endurtektarpróið mitt... en ég fer í það kl.13.30 á morgun.. ætla bara að bruna í RVK í fyrramálið en ég er enn sem fyrr í Nafla Alheimsins Annars er lítið að frétta... er bara að deyja úr öfund út í Lauie og co. að vera út Hollandi að spóka sig. Svo er Mary Ann og Co. að fara til Benedorm... en ég sit eftir á Klakanum og er að fara telja niður í mína frægu Danmerkurferð (þ.e hún mun vera fræg, þegar ég kem heim aftur ;))jæja best að reyna troða biðraðafræðinni inn
í minn takmarkaða heila...
C U!!!

þriðjudagur, maí 11, 2004

Þriðjudagur

Jelló....Nú er maður bara klæddur og kominn á ról....Þ.e Búinn í skólanum (fyrir utan eitt helv. endurtektarpróf en það er 19.maí) Við vinkonurnar Lára og Maríanna ætlum að fagna og fara út að borða ... kannski fær maður sér einn öllara ja eða bara koteil ...;)
Svo er náttlega djamm á föstudaginn reyndar hér í RVK en svo kemur maður vel undirbúin í djammið í Nafla Alheimsins. Það fer að líða að því að ég skelli inn gömlum myndum þar sem mín elsklega myndavél er komin úr viðgerð....Jey ;)jæja best að taka að eins til hérna heima hjá mér...
Verðum í bandi ;)

fimmtudagur, maí 06, 2004

Fimmtudagur

Oh hvað ég var sætur krakki ;) vildi bara leyfa ykkur að njóta fegurðar minnar á mínum yngri árum.... já þótt ótrúlegt megi virðast þá var ég líka falleg og sæt þá eins og ég er í dag ;) nei hvað er að ykkur það er ekkert ótrúlegt :)
pís át !!!

sunnudagur, maí 02, 2004

Sunnudagur

Jæja...Þetta skot gengur með stefnumótunarverkefnið okkar...en það hefur komið upp mikill misskilningur hjá fólki úti í bær um þetta verkefni og hef ég fenið nokkrara fyrirspurnir um það og ætla ég að reyna að útskýra þetta nánar..... þó að ég hefði ekkert á móti því að gera stefnumótaverkefni...þ.e fara á stefnumót er það ekki tilvikið :( nei því miður þá er ég að vinna stefnumótandi verkefni fyrir fyrirtæki úti í bæ... vona að þessi mjög svo skemmtilega útskýring hafi útskýrt fyrir fólki hvað málið snýst um :)

Any way þá skellti maður sér á nett djamm í gær.. en var nett á því og kom snemma heim... og enn og aftur engar myndir þar sem mín ástkæra myndavél er enn í viðgerð :(

Jæja eins og Glöggir lesendur hafa tekið eftir var breytt um útlit á síðunni og var það til þess að teljarinn minn hvarf :( en þá fékk ég bara nýjan svo ég vil bara biðja ykkur að vera dugle að refresh-a :)

jæja þarf að hætta

C U!!