Hola!!!

mánudagur, september 27, 2004

Mánudagur

Hellú..

Búið að vera nett góð helgi jabb því er bara alls ekki hægt að neita.
Föstudagskvöldið byrjaði þannig að ég og Laurie og Mary Ann héldum "smá partý" heima og skelltum okkur svo niður í bæ.. nokkuð þokkalegt kvöld ;)

Laugardagurinn byrjaði þannig að maður var vakin við það að það var verið að bjóða manni í rafting... ekki slæmt og audda skellti maður sér en ekki hvað... nett stuð og mæli með þessu fyrir alla ... næst er bara að skella sér í eitthvað stórfljótið... múhahah.. maður er orðin svo "sjóaður" í þessu

Og loks á sunnudagskvöldið var farið að dávaldinn mikla úff.. þetta var hrein og tær snilld þeir sem misstu af honum um helgina verða að fara á hann þegar hann kemur næst.. jabb.. þetta er góður skítur eins og menn myndu kannski segja.. en audda ekki ég..

Og því miður gleymdi ég myndavélinni minni alla helgina þanngi að engar nýjar myndir sorrý þetta gengur náttlega ekki þarf að bæta mig á því sviðinu..

That's all folks

miðvikudagur, september 22, 2004

Þriðjudagur

Jæja...
Nú er svo komið að síðan er bara orðin víðlesin, jabb fólk sem maður þekkir ekki neitt er að farið að kommenta!! jabb ég hef greinilega sært blygðunarkennd þessa "unga" manns sem kommentaði við síðustu skrif..

En bara svo það fari ekki fram hjá neinum þá er ekki ætlunin með þessari síður að særa fólk andlega og jafnvel líkamlega ef svo ber undir... þetta er allt til gamans gert... Þessi "ungi" maður ætti kannski bara að smæla framan í heiminn og þá mun heimurinn smæla framan í hann ;) En KÆRI vinur ef þetta hefur sært þig þá sorrý en ég tek ekki orðin til baka því að ég lét myndirnar tala sínu máli hehe.. og þetta var allt bara skot á Örnu mína kæru vinkonu og það sérst langar leiðir að þetta var ekkert að "reyna við" en ég sagði að hún hefði verið að reyna við þig ekki öfug. Og ef þú eða jafnvel fleiri vilja losna við myndirnar af síðunni þá á að kommenta um það og ástæðu þess...

Þetta er nóg í bili ;)

mánudagur, september 20, 2004

Mánudagur

Jæja.. lítið að frétta nema hvað..
Var að vinna um helgina reyndar var það nokkuð nett.
Á föstudeginum fóru ég, pabbi, mamma og Ragnar í spa á Nordica hóteli úfff það er geðveikt gott og nice.. mæli eindreigið með því úff..

Á föstudagskvöldið bauð ég Elítunni og Örnu í mat og það var nokkuð gaman maður er nettur kokkur í sér ;) ... það endaði náttlega í djammi nema hvað ;) Arna var að reyna við einhvern KARL, ég læta bara myndirnar tala sínu málið... múhaha jæja vinkona hvernig væri að róa sig smá hehe..

Ég er búin að skella inn myndunum frá því á föstudaginn og frá því að við Grundarfjarðar tútturnar fórum í okkar umtöluðu sumarbústaðaferð njótið vel þar til næst ;)


Flottar... En ekki hvað!!!!

mánudagur, september 13, 2004

Mánudagur

Heil og sæl
Er nokkuð mikið léleg að skrifa núna... reyni að fara að bæta úr því..
um helgina var skellt sér upp í bústað með Grundarfjarðar Túttunum: Heiðrúni, Steinunni,Sellu og Olgu... Þetta var hrein og tær snilld takk fyrir frábæra helgi stelpur ;)

Annars er lítið að frétta.. Reyndar er Rex litli bróðir með æði fyrir sjálfum sér þessa dagana og gerir lítið annað en að skoða sjálfan sig (sem er reynar ekkert nýtt) en þessi mynd er það sem er í uppáhaldi hjá honum núna
Njótið vel:

miðvikudagur, september 01, 2004

Miðvikudagurinn 1. sept

JÆja lítið að segja skólinn kominn á fullt og ég er að reyna að komast í gang í samræmi við það humm gengur eitthvað hægt....

Vildi bara minna á hörkuleik Víkings Ólafsvík og leiknis í rvk þetta er hreinn úrslitaleikur fyrir Víkinga um hvort þeir koma komast upp í fyrstu deild... hvet alla að mæta á leikinn á sunnudaginn og hvetja Vikinga til sigurs...

Jæja nóg í bili

p.s set inn myndir við tækifæri... svona þegar ég nenni...er eitthvað löt í því núna