Jólin.......Alveg að koma ;)
Já já Nú er maður komin heim eftir hreint frábæra Londonferð
við þrömuðum alla Oxford street upp og niður mörgu sinnum ;) maður ætti að vera komin í form fyrir jólin heheh...Set myndir inn við tækifæri...
Reyndi að fara í eina ferð í Londoneye en það var búið að loka þegar við komum þangað...þá á maður bara eitthvað eftir næst þegar maður fer til Lonond ;) ekki satt??
Við Laurie skelltum okkur á Rómeó og Júlía (íslenska uppsetningin í London) þetta var bara besta sýning sem ég hef séð.... Maður er bara nett ástfangin eftir að hafa séð svona sýningu ... ég tala nú ekki um karlmennina í henni hehehe ;)
Nú styttist óðum í jólin... ég hlakka ekkert smá til... það er svo gott að vera heima um jólin og lesa góða bók eða glápa á sjónvarpið ;)
jæja svo er ball á annan í jólum og svo náttlega á gamlársdag... svo maður þarf að hvíla sig vel til að geta tekið vel á því ;)
Annar bið ég bara heilsa ykkur
Gleðileg Jól!!!!

