Hola!!!

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Ég er svooooo heimsk!!!!!!!!!!

Já nú sló ég met í heimsku.... þetta er verra heldur en bakkabræður.... ég hélt að um leið og ég myndi lita á mér hárið dökkt hætti maður þessu ljósku dóti... en nei... once a blond always a blond.....

Í gærkvöldi þegar ég var að fara sofa þá ákvað ég að kíkja aðeins á netið... ég hefði betur sleppt því.... Hún Rosie skellti sér á eBay.. eftir smá stund fann hún iPod mini á þvílíku tilboði að það hefur ekki áður sérst norðan alpafjalla.. jabb iPod á $10 svo hún bauð $10,5 og viti menn fékk hann.... en þegar betur var á gáð stó ekki iPod mini... nieee... þetta var iPod mini wholesale list.... arrrrgg... hvað ég var brjáluð... búin að eyða 1.000kr. í dýrast klósett pappír ever... því að ég get ekki notað þetta í neitt annað.....

Jæja annars var helgin fín fór í vísó á föstudaginn og endaði niðri í bæ en ekki hvað!!!! náði reyndar að koma mér heim... skil ekki hvernig... skrítið hvað maður verður alltaf fullur eftir vísindaferðir... þetta ætti sálarrannsóknarfélag íslands að kanna...

Á laugardagsnóttina tók ég að mér að vinna á Hlölla með Svenna frænda... það var bara nokkuð stuð hjá okkur.... Bærinn var náttlega stappaður af fólki... ekki slæmt það... Reyndar var bara gaman að vera svona "hinu" meigin við borðið.... þekki aðeins þá hlið að vera þessi sem kaupir ;)

Í næstu viku fer maður svo til Brussels ... Hlakka ekkert smá til þess... Prufa að djamma einhvers annars staðar heldur en á Íslandi ;)
Fáið að heyra meira af því seinna....

Rosie...OUT!!!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home