Hola!!!

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Grundfirsk Stjörnumessa!!!!!!!!!!!

Já þetta var hrein og bein snilld á Breiðvagni á föstudagskvöldið.. Kvöldið hjá mér byrjaði reyndar á ættar-þorrablóti en svo var stefnan tekin á breiðvang. Þetta var hrein og tær snilld hjá þeim.. mitt nýja markmið í lífinu er núna að komast í vorgleðihópinn ;)
Söngvarar kvöldsins eiga heiður skilið Vá hvað þetta var geggjað ég á hreinlega bara ekki til orð ;)
Manni fannst maður vera komin á stórt ættarmót... þekkti nánast alla.. og þetta getur maður ekki alltaf sagt þegar maður kemur á Breiðvang :) geggjað stuð

Svo á Laugardeginum var farið upp í bústað... Ég Laurie, Mary Ann, Arna og Svava..
Bústaðaferðin byrjaði reynar ekki vel þegar við förum af þjóðveginum kemur það í ljós að það er ofmikill snjór fyrir minn fjallabíl til að keyra upp að bústaðinum.. jæja en við létum það ekki stoppa okkur heldur skelltum okkur bara í hlý föt og gengum af stað... tæpum klukkutíma seinna komust við að bústaðinum... Þá var drifið í því að kveikja á pottinum og farið í hann um kl 9 um kvöldið og setið til kl.1 já reyndar þoldu sumir ekki hitan of vel og þurftu að fara að sofa eftir pottaferðina ;)

Á einhver myndir frá Brodway? gleymdi nefnilega að taka mína með ekki sniðugt

Jæja nú hætti ég þessu bulli

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home