Hola!!!

mánudagur, maí 02, 2005

Komin heim!!

Jæja þá er maður komin heim... ja kom reyndar um miðja nótt á þriðjudaginn...

London bíður þess ekki bætur eftir að hafa haft okkur Þórey þarna í nokkra daga ;)... við versluðum eins og vitleysingar.. maður endaði víst á því að hafa keypt sér 4 skópör.. tala nú ekki um öll fötin... vísa reikningurinn verður helvíti þykkur í næsta mánuði... fokkit það er seinni tíma vandamál hehehe...

Við skelltum okkur í leikhús og alles... sáum Mama mía.. það var nú hrein og tær snilld.. ég er enn með öll Abba lögin á heilanum..

Fórum líka á "aðalskemmtistað" London borgar.. engann annan er Staupastein... á engelskri tungu Cheers...Þar sáum við Hermann Hreiðarsson og félaga en ég mátti ekki bulla í honum og ekki einu sinni taka mynd... Þórey sá alveg til þess... humm æ vonder væ....

Eníhú.. er búin að skella inn nokkrum myndum frá London var heldur léleg á myndavélinni... skil ekki hvað er að mér þessar vikurnar.. reyni nú að bæta úr því..

jæja best drulla sér í að laga bs ritgerðina svo maður geti haldið svaka partý í sumar...

Rosie OUT!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home