Hola!!!

mánudagur, júlí 25, 2005

Jæja þá er fjörið búið

Já helgin er búin og ég get hreinlega ekki verið ánægðari með hana ;)
Þetta var hrein og tær snilld. Allt gekk upp.. Snilld...
Vil bara þakka öllum sem hjálpuðu mér að gera þessa helgi að veruleika (oh mín bara orðin væmin)
Bærin var svo vel skreyttur að það er ekki hægt að lýsa því.. ég tók nokkrar myndir á meðan verið var að skreyta..
var að skella inn öllum myndunum :) allt komið nú getið þið skoðað..
Hér með auglýsi ég líka eftir einhverjum skemmtilegum til að fara með mér í útileigu um helgina.... Nú vil ég fá að djamm því ekki var það gert um helgina ;) hehe...
Sendi meira segja mútti í bæin til að versla fyrir mig tjald og tjaldstól hehehe..
Endilega tékkið á myndunum..

Rosie OUT !!!

mánudagur, júlí 18, 2005

Ert'ekki að verða stressuð????

Humm jú jú... nú þegar líður að hátíð þá fer maður að stressast smátt og smátt.. en þetta reddast allt saman er þaggi??

Er búin að setja inn myndir frá Sálarballi á Akranesi hrein og tær snilld, og verður það eflaust líka í Samkomuhúsi Grundarfjarðar :) en ekki hvað!!

Hér með kemur loforð um það að Rósa Guðmundsdóttir muni vera dugleg að taka myndir um næstu helgi er koma svo til birtingar hér á þessari síðu...

jæja þar til eftir næstu helgi

Rosie OUT!!!

mánudagur, júlí 11, 2005

GÓÐ upphitun fyrir Á Góðri Stund í Grundarfirði

Úff.. Já það er sko hægt að segja að nýliðin helgi hafi verið mjög góð upphitun fyrir hátíðina Á góðri stund í Grundarfirði!!!

Föstudagurinn byrjaði rólega, mætti í mína vinnu og skellti mér svo í höfuðborgina.. Elítan var með mataboð... auðvitað mætti maður þar. Því næst skellti Elítan sér niður í bæ. Þar tvístraðist hún upp og Við Laurie skelltum okkur á Nasa á Sálarball!!! uss.. það var nú líka svona helvíti mikið stuð... sjaldan skemmt mér eins mikið... Ég lofa því hér með Frábæru balli í samkomuhúsi Grundarfjarðar 22. júlí nk.!!!!!!

Laugadagurinn byrjaði erfiðlega var vakin upp með sms.. þá var það Arna að spyrja mig hvort að ég hefði ekki áhuga á að kíkja upp á skipaskagann á eitt ball eða svo.. jú jú auðvitað hafði Rosie áhuga á því... Svo Tjéllan skellti sér upp á skaga. Fyrst var farið í Partý eða svo sagði Eva (vinkona hennar Örnu, Sem var reyndar svo góð að leyfa okkur að gista... Takk fyrir það Eva!) Nei Nei þá var þetta líka svona svaka fínt afmælis-og útskriftarboð. Við Arna vorum ekki alveg að fíla að vera svona partý crashers alveg strax svo við kíktum aðeins á rúnntinn á Akranesi (það er víst ekki hægt að koma á skagann án þess að kíkja á rúntinn) Því næst þegar við vissum að fólk í partýinu væri komið svolítið í glas skelltum við okkur þangað... og var líka svona helvíti mikið stuð!
Nokkuð seinna fórum við svo í skemmuna þar sem að ballið var haldið ( spurning um að tala við Palla frænda og fá G.Run skemmuna lánaða fyrir á góðri stund??) OG þar var stappað af fólki... Shit hef aldrei séð jafn mikið af fólki á einu balli eníhú... það var snilldar stuð og geggjað gaman!!!!!!! Það getur náttlega ekkert klikkað þegar Sálin og Paparnir koma saman... þar er alltaf gaman..

Núna er maður þokkalega komin í stuðið fyrir á góðri stundu!!! ætlar þú ekki að koma??? BE THERE OR BE SQUERE!!!!!!
Rosie OUT!!!

föstudagur, júlí 08, 2005

Nokkra myndir frá Útskriftarveislunni

Nokkrar myndir komnar úr útskriftarveislunni minni... Tékk it át!!!
p.s Ég er ógðesleg gella á nýja bílnum uss...
Rosie OUT!!!