Nei Nei hvaða vitleysa fjörið er langt frá því að vera búið
Það er víst eitthvað verið að kvarta undan bloggleysi á tjéllunni... þá verður maður að smella inn einni færslu eða svo... til að halda fólkinu góðu hehe..
Ástæða bloggleysis er þessi klassíska.. vinna!!... ég er að byrja í nýjum vinnum og því á fullu að setja mig inn í þetta!! já ég veit þetta er engin afsökun...
Við Laurie skelltum okkur á Akureyri um Verslunarmannahelginna það var nett stuð!! reyndar var ég of ung til að fá að tjalda þarna já já... maður er bara unglamb enþá!! en það reddaðist þar sem að móðurbróðir minn og föðursystir mín voru bæði þarna með fjölskyldurnar sínar svo þau hleyptu mér inn hehehe.. þau gátu útskýrt að fyrir staðarhöldurum að ég væri ekki vandræðaunglingur (þau vita víst ekki betur)...
Síðan var skellt sér á ball með ný dönsk.. það var hrein snilld Björn Jörundur kynþokkinn uppmálaður.. hann átti reyndar erfitt með mál.. en hú gifs a shit... ég kunni textann hehe...
Svo daginn eftir var farið á enn eitt Sálarballið... ég er farin að halda að maður sé að fá aðild í sálargrúppíuklúbbinn.. held að þetta sé í pósti...
Danskir dagar hafa sungið sitt síðasta í ár.. fór að sjálfsögðu þangað!! en ekki hvað?? kann ekki að sleppa úr bæjarhátíð hehe. Vinir vors og blóma spiluðu um borð í Baldri!! hrein og tær snilld... alltaf jafn gaman af þeim... Já og auðvitað Jacob danski júróvisión farinn var þarna.. úúú a sexý little þing..myndir fara að lenda inn
Helgin framundan... ætla skella mér í borg óttans!! mín fyrsta ferð á menningarnótt.. vonandi verð ég ekki fyrir vonbrigðum... held ekki hef heyrt að Sálin sé að fara spila á nasa það kvöld.. ekki slæmt... Gummi jóns hýtur að fara þekkja mig ;) hú dosint? múhahah..
Lofa að taka myndir á menningarnótt!!!
Var þetta ekki fínt??
Rosie OUT!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home