Hola!!!

þriðjudagur, september 20, 2005

Andskotinn það er að koma vetur

Jáhá!!! Nú er bara kominn tími á að kaupa nagladekki, taka fram skíðin og snjósleðana. Það snjóaði niður hlíðar á Kirkjufellinu góða í morgun.. En það er kannski ekki enn tími á að örvænta þar sem að snjórinn var farin fyrir hádegi.. hjúkket...

Helgin sem leið var nokkuð busý... Strax eftir vinnu á föstudaginn var brunað út í Ólafsvík.. já já róleg ég hafði góða afsökun... Litli bró og félagar í Víking Ó. voru að fara að keppa síðasta leikinn sinn í sumar. Vildi svo skemmtilega til að Brósi var í byrjunarliðinu (MJÖG stolt systir) og þeir spiluð nokkuð góðan leik framan af og voru mikið betri aðilinn í fyrri hálfleik. Svo dró til tíðinda í seinni hálfleik þegar þeir Víkingar voru í sókn... Brósi Tók líka þetta flotta skot á markið og skoraði mér og Guðrúnu til mikillar gleði... Við (ég) misstum okkur alveg... glæsilegt mark hjá Ragnari... og þeir unnu leikinn 1-0 og endu því í 5.sæti 1.deildar.. Mjög góður árangur miðað við að allir spáðu þeim falli í byrjun sumars.

Eftir leikinn var Brunað til borgar óttans og gist hjá Laurie.. en við þurftum að vakna snemma á Laugardagsmorgun til að taka okkur til.. vorum að fara í Brúðkaup hjá Kötu kl.2. Það náðist allt og allir sögðu já á réttum augnablikum þannig að hún Kata er nú gift kona. Við Laurie og Mary Ann stoppuðum reyndar nokkuð stutt í veislunni þar sem við þurftu að vera mættar annað, en samt glæsilegt brúðkaup!

Því næst var Brunað aftur til Ólafsvíkur ... núna hafði ég þá afsökun að vera fara í lokahófið ;) Snilldar lokahóf svo tók við ekki jafn snilldar ball og við vorum komin hjemme um hálf 3.

Guðrún Greyið var svo óheppin að brenna sig illa á löppinni á fimmtudagskvöld þannig að hún hefur verið fjarri góðu gamni alla helgina...
Ragnar átti svo afmæli á sunnudag og gáfum við Runólfur honum spilið Catan.. og erum við búin að sitja föst við það!! algjör snilld
that's all folks

Rosie OUT!!

P.s Myndir koma um leið og ég fæ tölvuna mína... en hún er búin að vera í viðgerð síðan í endan Ágúst.. Rosie er ekki sátt... kannski að ég noti tölvuna hans pabba veit samt ekki hvort ég nenni því

mánudagur, september 12, 2005

uss allir að kvarta ;)

Hola!!

Allt að gerast hérna. Var að tala við Tölvu kallana í borg óttans.. og Móðurborðið fór í tölvunni minn.. :( þannig að ég fæ hana ekki alveg strax... er farin að sakna hennar mjög mjög mikið!!! myndavélin að verða full og ekkert getað losað hana... en vonandi fæ ég hana í vikunni!! maður trúir samt aldrei þessum köllum þarna í reykjavíkinni hehe..

Karen vinkona bara gift!! maður mætti í skírn og kellan bara ákvað að giftast og lét engan vita.. jú held að Sæmó(Kallinn hennar) hafi fengið að vita þetta rétt áður hehe...

Svo er maður að fara í giftingu um næstu helgi!!! allt að gerast!! svo er Mary Ann að fara að giftast næsta sumar...hum maður endar kannski einn og yfirgefin...

Maður má ekki fara að örvænta alveg strax.. gefum þessu mánuð í viðbót

Rosie OUT!!!