Hola!!!

miðvikudagur, október 12, 2005

Tölvan komin í lag ---- Myndir væntanlegar

Já ótrúlegt en satt þá er ég búin að endurheimt tölvuna mína eftir mánaðar fjarveru. Úr því að tölvan er komin er nú komið að því að maður skelli inn myndum frá haustinu en myndavélin er stút full, tvö brúðkaup, skírn, djamm og margt fleira.

Maður ætlar að skella sér á myndasíðu hjá honum Soffa.. alltaf að versla (frítt) í heimabyggð híhí.. nei nei bara grín.. en alltaf gott að geta haft myndirnar allar á sama staðnum.

Á föstudag fór ég í matarpartý hjá Siggu, Bæjarskrifstofan með vinnustaðarpartý, það var líka svona helv. skemmtilegt,

Kíkt var í Reykjavíkina á laugardaginn. Elítan var með matarboð, Mary Ann eldaði Nautalundir ofaní mannskapinn ekki slæmt svo var spjallað, borðað og drukkuð frameftir og nokkrir skelltu sér down town Reykjavik

Á Sunnudaginn varð Gummi Afi 85 ára, og að því tilefni var haldið til veislu, já nóg að borða þar ;)

Góð helgi í alla staði..
Var líka nokkuð dugleg að prjóna.. jabb tjéllan er að prjóna sér eitt stykki lopapeysu, nú á ég bara eftir að prjóna hálsmálið... hehe...
Ekki veitir af lopapeysum í þessu veðri.. jólasnjór og læti..
Kannski maður geti fljótlega farið á snjósleðann jibíí..

Enn og aftur hefur maður tekið að sér að skipuleggja eitthvað.... Nú eru það Rökkurdagar!!!!!!!!

Já skipulaggning gengur ágætlega... en þeir byrja 20. Okt og standa langt fram í nóvember :)

21.okt til 23.okt fer ég til London, híhí.. maður er bara alltaf þarna... æ læk it....
Ég, Guðrún, Karítas, Sigurrós og Auður ætlum að skella okkur eina helgi í svaðalega verslunarferð til London... það verður æðislegt og get ég varla beðið...

Þar til næst
Rosie OUT!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home