Hola!!!

miðvikudagur, desember 21, 2005

Hvað er að Gerast??

Ég spyr bara hvað er að gerast með landsmenn?
Eiga jólin og aðventan ekki að vera tími ljós, friðar og fjölskyldu? maður spyr sig...
Ég vogaði mér að kíkja í höfuðborgina um síðast liðna helgi, hún Hobba (fasteignasnilli) átti afmæli. Ég fer á föstudagskvöldið og kíki þá á Örnu vikonu, ekkert athugavert við það við skellum okkur niður í bæ nánar tiltekið á Ara í Ögri. Þar var svaka stuð og vildi svo skemmtilega til að ég hitti bekkjarsystur mína úr Verzló og unnusan hennar frábært kvöld.
SVO KOM LAUGARDAGUR!!!
Dagurinn nokkuð vel fór í skveringu hjá henni Guðrúnu og lít líka svona helvít vel út...
Því næst skellum við okkur í Smáralindina...
Öss ég hélt að ég yrði ekki eldri... Fólk var að missa sig úr stressi og rugli... Þarna er samt HEIL VIKA til jóla... Því næst fórum við í Kringluna... og ekki vara það skárra það... Virðulegar konur rífast um hver var á undan að sjá skyrtuna og fl... Þetta var algjört menningarsjokk fyrir sveita stelpuna... Var ég orðin svona ónæm fyirr þessu þegar maður var í Reykjaví?? tók ég þátt í þessu??
Öss ég vona ekki. Nú er maður svo líbó á þessu öllu saman.. veit að þetta reddast..
Reyndar þarf ég að fara til Reykjavíkur á morgun (fimmtudag) þá á víst að skrifa undir kaupin á íbúðinni... Maður reynir að sleppa því að koma nálægt Smáralindinni, Kringlunni eða laugarveginum....
Jæja nóg í bili

Rosie OUT!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home