Hola!!!

mánudagur, febrúar 28, 2005

Brussels ... Here we come!!!!!!!

Jabb... Flýg til Amsterdam í fyrramálið og keyri svo þaðan til Brussels... Nett stuð þar á ferðinni ;)


fyrir þá sem vita ekki hvað Brussel er ;)

Helgin var Frábær.. Fór vestur á Fimmtudagsmorgun og hafði það hreint frábært ;)
Keyrði svo aftur í bæinn á Laugardaginn og Tók Runólf og Kaju frænku með mér... Við Skelltum okkur svo í partý hjá Hobbu og Gumma... Það var alveg frábært.. og Vil ég bara óska þeim til hamingju með nýju íbúðina ;) Svo var rétt aðeins litið niður í bæ.. en ekki hvað ....

Myndir verða settar inn þegar ég kem heim frá Brussel....

Hafið það gott á meðan ég spóka mig í Brussel..... látið ykkur ekki leiðast

Rosie OUT!!!!!!!!!!!!!!!

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Ég er svooooo heimsk!!!!!!!!!!

Já nú sló ég met í heimsku.... þetta er verra heldur en bakkabræður.... ég hélt að um leið og ég myndi lita á mér hárið dökkt hætti maður þessu ljósku dóti... en nei... once a blond always a blond.....

Í gærkvöldi þegar ég var að fara sofa þá ákvað ég að kíkja aðeins á netið... ég hefði betur sleppt því.... Hún Rosie skellti sér á eBay.. eftir smá stund fann hún iPod mini á þvílíku tilboði að það hefur ekki áður sérst norðan alpafjalla.. jabb iPod á $10 svo hún bauð $10,5 og viti menn fékk hann.... en þegar betur var á gáð stó ekki iPod mini... nieee... þetta var iPod mini wholesale list.... arrrrgg... hvað ég var brjáluð... búin að eyða 1.000kr. í dýrast klósett pappír ever... því að ég get ekki notað þetta í neitt annað.....

Jæja annars var helgin fín fór í vísó á föstudaginn og endaði niðri í bæ en ekki hvað!!!! náði reyndar að koma mér heim... skil ekki hvernig... skrítið hvað maður verður alltaf fullur eftir vísindaferðir... þetta ætti sálarrannsóknarfélag íslands að kanna...

Á laugardagsnóttina tók ég að mér að vinna á Hlölla með Svenna frænda... það var bara nokkuð stuð hjá okkur.... Bærinn var náttlega stappaður af fólki... ekki slæmt það... Reyndar var bara gaman að vera svona "hinu" meigin við borðið.... þekki aðeins þá hlið að vera þessi sem kaupir ;)

Í næstu viku fer maður svo til Brussels ... Hlakka ekkert smá til þess... Prufa að djamma einhvers annars staðar heldur en á Íslandi ;)
Fáið að heyra meira af því seinna....

Rosie...OUT!!!!!

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Grundfirsk Stjörnumessa!!!!!!!!!!!

Já þetta var hrein og bein snilld á Breiðvagni á föstudagskvöldið.. Kvöldið hjá mér byrjaði reyndar á ættar-þorrablóti en svo var stefnan tekin á breiðvang. Þetta var hrein og tær snilld hjá þeim.. mitt nýja markmið í lífinu er núna að komast í vorgleðihópinn ;)
Söngvarar kvöldsins eiga heiður skilið Vá hvað þetta var geggjað ég á hreinlega bara ekki til orð ;)
Manni fannst maður vera komin á stórt ættarmót... þekkti nánast alla.. og þetta getur maður ekki alltaf sagt þegar maður kemur á Breiðvang :) geggjað stuð

Svo á Laugardeginum var farið upp í bústað... Ég Laurie, Mary Ann, Arna og Svava..
Bústaðaferðin byrjaði reynar ekki vel þegar við förum af þjóðveginum kemur það í ljós að það er ofmikill snjór fyrir minn fjallabíl til að keyra upp að bústaðinum.. jæja en við létum það ekki stoppa okkur heldur skelltum okkur bara í hlý föt og gengum af stað... tæpum klukkutíma seinna komust við að bústaðinum... Þá var drifið í því að kveikja á pottinum og farið í hann um kl 9 um kvöldið og setið til kl.1 já reyndar þoldu sumir ekki hitan of vel og þurftu að fara að sofa eftir pottaferðina ;)

Á einhver myndir frá Brodway? gleymdi nefnilega að taka mína með ekki sniðugt

Jæja nú hætti ég þessu bulli