Hola!!!

þriðjudagur, maí 24, 2005

Summer holiday

Já fyrst vil ég þakka fyrir frábærar undirtektir á nýja starfsheiti mínu í síðastu skrifum...

Nú á föstudaginn skilaði maður B.Sc ritgerðinni og í gær var síðasta prófið klárað.. núna situr maður bara og vonar það besta!!! í besta falli verður svaka partý í júní.. í versta falli verður það í janúar múhahaha....

Eníhú.. mín bara ný komin frá London þá á bara að skella sér í útskriftarferð til spánar.... Já það er gott að vera fátækur námsmaður;)

Já spurnig hvort maður kaupi sér ekki eitt stykki myndavél í fríhöfninni...þar sem maður seldi littla frænda sínum hina .. en það er einmitt ástæðan fyrir því að það hefur ekki komið nýjar myndir á síðuna...

jæja nú er spurning um að klára pakka niður..

Rosie OUT!!!

föstudagur, maí 13, 2005

JáHá!!!

Jæja....

Þá er þetta opinbert... maður bara orðin Framkvæmdastjóri!!!

you can read all about it here

Maður er greinilega á leiðinni upp í lífinu hehe..

Rosie OUT!!

mánudagur, maí 02, 2005

Komin heim!!

Jæja þá er maður komin heim... ja kom reyndar um miðja nótt á þriðjudaginn...

London bíður þess ekki bætur eftir að hafa haft okkur Þórey þarna í nokkra daga ;)... við versluðum eins og vitleysingar.. maður endaði víst á því að hafa keypt sér 4 skópör.. tala nú ekki um öll fötin... vísa reikningurinn verður helvíti þykkur í næsta mánuði... fokkit það er seinni tíma vandamál hehehe...

Við skelltum okkur í leikhús og alles... sáum Mama mía.. það var nú hrein og tær snilld.. ég er enn með öll Abba lögin á heilanum..

Fórum líka á "aðalskemmtistað" London borgar.. engann annan er Staupastein... á engelskri tungu Cheers...Þar sáum við Hermann Hreiðarsson og félaga en ég mátti ekki bulla í honum og ekki einu sinni taka mynd... Þórey sá alveg til þess... humm æ vonder væ....

Eníhú.. er búin að skella inn nokkrum myndum frá London var heldur léleg á myndavélinni... skil ekki hvað er að mér þessar vikurnar.. reyni nú að bæta úr því..

jæja best drulla sér í að laga bs ritgerðina svo maður geti haldið svaka partý í sumar...

Rosie OUT!!!