Hola!!!

mánudagur, október 31, 2005

JESSSSSS

Loksins er farið helv. popupið sem kom alltaf á undan þegar maður fór inn á rosag.tk... En mér tókst áðan að breyta þessu þannig að þetta ætti að hætta... Vona allaveg að þetta dugi....

Annars er ágætt að frétta snéri á mér hnéið á föstudaginn... ekki spurja hvernig... ´

er Öll að koma til núna get labbað óstudd upp og niður stiga.. þá er maður orðin góður er þaggi...

Eníhú...

Rosie OUT!!!

föstudagur, október 28, 2005

Jæja London Myndir komnar í hús :)

Já nú er maður búin að setja London myndirnar inn á myndir.ekkert.is Soffi Algjör snillingur að setja þetta upp ...

Ég tek hina linkana líka í burtu... nú er það bara linkurinn ;)

Og Laurie.. ég var bara að bíða að einhver spurði eftir þeim ath hvort einhver hefði áhuga á þessu :)

Eníhú enjoy....

Rosie OUT...

Allir að mæta á Rökkurdaga... Dagskráin HÉR

miðvikudagur, október 19, 2005

Rökkurdagar 2005

Dagskráin fyrir Rökkurdaga 2005 er komin og hægt er að nálgast hana hér

Ekki láta ykkur vanta.

Myndum seinkar þar sem ég er búin að vera svo mikið að vinna að Rökkurdögum að ég hef ekki haft tíma í að smella þeim inn. Nú sé ég ekki fram að nenna því fyrr en ég kem heim frá London, en þá fylgja þær myndir með...

Eníhú.. Rosie OUT!

miðvikudagur, október 12, 2005

Tölvan komin í lag ---- Myndir væntanlegar

Já ótrúlegt en satt þá er ég búin að endurheimt tölvuna mína eftir mánaðar fjarveru. Úr því að tölvan er komin er nú komið að því að maður skelli inn myndum frá haustinu en myndavélin er stút full, tvö brúðkaup, skírn, djamm og margt fleira.

Maður ætlar að skella sér á myndasíðu hjá honum Soffa.. alltaf að versla (frítt) í heimabyggð híhí.. nei nei bara grín.. en alltaf gott að geta haft myndirnar allar á sama staðnum.

Á föstudag fór ég í matarpartý hjá Siggu, Bæjarskrifstofan með vinnustaðarpartý, það var líka svona helv. skemmtilegt,

Kíkt var í Reykjavíkina á laugardaginn. Elítan var með matarboð, Mary Ann eldaði Nautalundir ofaní mannskapinn ekki slæmt svo var spjallað, borðað og drukkuð frameftir og nokkrir skelltu sér down town Reykjavik

Á Sunnudaginn varð Gummi Afi 85 ára, og að því tilefni var haldið til veislu, já nóg að borða þar ;)

Góð helgi í alla staði..
Var líka nokkuð dugleg að prjóna.. jabb tjéllan er að prjóna sér eitt stykki lopapeysu, nú á ég bara eftir að prjóna hálsmálið... hehe...
Ekki veitir af lopapeysum í þessu veðri.. jólasnjór og læti..
Kannski maður geti fljótlega farið á snjósleðann jibíí..

Enn og aftur hefur maður tekið að sér að skipuleggja eitthvað.... Nú eru það Rökkurdagar!!!!!!!!

Já skipulaggning gengur ágætlega... en þeir byrja 20. Okt og standa langt fram í nóvember :)

21.okt til 23.okt fer ég til London, híhí.. maður er bara alltaf þarna... æ læk it....
Ég, Guðrún, Karítas, Sigurrós og Auður ætlum að skella okkur eina helgi í svaðalega verslunarferð til London... það verður æðislegt og get ég varla beðið...

Þar til næst
Rosie OUT!!!

mánudagur, október 03, 2005

Jahá! 5 saucy staðreyndir segið þið!!!

Maður verður víst að vera Góða stelpa (svona einu sinni) og svara kalli um klukk...

1. Telpan er flutt aftur heim til mömmu og pabba

2. Ég er Viðskiptafræðingur ;)

3. Ég er rosalega seinheppin en það vil ég kalla það, aðrir kalla það brussuskap, en mér hefur tekist að gera ótrúlegustu hluti sem ég ætla ekki að telja upp hér...

4. Ég á flottasta bílinn í Nafla Alheimsins jeh baby jehh..

5. Tölvan mín er enn í viðgerð og Rosie er að þokkalega brjáluð!! Ef þið lesið eða heyrið á næstum dögum um að einhver viðskiptavinur OK hafi ráðist á Verkstæðið hjá þeim ... megið þið ekkki hald það sé ég... ég er svo góð stelpa ;)


Jabb Tölvan enn í viðgerð hjá Opnum Kerfum er þokklega að missa þolinmæðina... þeir lofuðu henni síðast þegar ég talaði við þá (á föstudag),ég hringi sem sagt daglega, þá ætti hún að vera tilbúin í þessari viku... jehh eins gott fyrir þá...

Þá á ég víst að klukka aðra en þar sem það er búið að klukka alla sem ég les, þá ætla ég að sleppa þessu... fyrir utan það að þetta er roslega skrítið fyribæri...

Eníhú..Rosie OUT