Þá vitið þið það
Fékk sent þetta próf, Hvernig Tröll ert þú? og ég er :
Viðskiptajöfur
Þú ert nýjungagjörn, yfirveguð félagsvera.
Það fyrsta sem viðskiptajöfurinn hugsaði þegar Ólafur og Dorrit trúlofuðust var hvaða áhrif það myndi hafa á gengi íslensku krónunnar. Honum finnst Donald Trump vera svalur... líka peningaklemmur. Hann ætlar, er, var eða vildi að hann hefði verið í Versló - en ekki söngleiknum.
Viðskiptajöfurinn tekur ákvarðanir með heilanum en ekki hjartanu og þarf að hugsa sig um þegar einhver spyr hann: „Peningana eða lífið!?“ Hann hefur stáltaugar og getur lagt allt undir og í framtíðinni verður viðskiptajöfurinn annað hvort moldríkur - eða staurblankur.
Það er toppurinn að vera í teinóttu
Þá vitið þið það!!!
Nýja myndir komnar
Rosie
OUT!!!

