Gleðilegt nýtt ár
Jæja nú er maður búin að hafa það gott! Reyndar er maður búin að vera í littum fríum, Eitthvað sem maður er óvanur... nú þarf maður að fara að vinna bara eins og aðrir.. Fengum íbúðina afhenda á miðvikudaginn (28. des) Geggjað spennandi... Ég og Runólfur förum í borg óttans á nýjársdag og flytjum dótið okkar.. þannig að maður byrjar nýtt ár í nýrri íbúð ;)
Maður er eitthvað að gæla við að hafa innflutningspartý/afmælispartý í nýju íbúðinni... hum er reynar ekkert búin að ræða þetta við meðeigandann.. spurning um hvort maður nefni þetta við hann?? Meira um það seinna ;)
Annars vildi ég bara óska ykkur gleðilgrar hátíðar og Gleðilegs nýs ár, með þökk fyrir það liðna.. hafið það gott yfir áramótin







