Hola!!!

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Grundó Dagar búnir!!

Jæja þá eru Grundarfjarðardagarinn búnir... Frábærir í alla staði...

Það var ekkert smá æðislegt að geta verið bara áhorfandi og þátttakandi á hátíðinni í ár en ekki hafa áhyggjur af hverju einasta atriði.

Lítið hefur gerst hjá Tjéllu síðan síðast var ritað... Neibb bíddu aðeins... Við ákv. að Gæsa Mary Ann um daginn og var það frábær dagur.

Byrjuðum á því að fara með hana í Mekka spa og senda hana í nudd og heitan pott, þar var aðeins skálað í kampavín.. Vona næst og fínt

Eftir Mekka Spa var skellt sér á "uppáhalds" Veitingastað Elítunnar KFC og ekki klikkuðu þeir frekar en fyrri daginn..

Nú þegar búið var að metta svangar stúlkur var brunað á Stokkseyri og kíkt í Draugasetrið. Áður hafði okkur verið tilkynnt að það tæki c.a 45 min að fara í gegnum safnið. Við Vorum 10 min. Hlupum eins og við ættum lífið að leysa.Við vorum eins og littar smá stelpur í ógurlegasta draugahúsi heimsins. Jesús ég hef sjaldan verið eins hrædd á ævinni... Skammaðist mín samt örlítið þegar við vorum komnar út... skyldi ekki hve djöfullinn hafði komið fyrir okkur En svona er þetta ;) Mæli alla vega með Draugasetrinu fyrir þá sem finnst gaman að hræðsat ;)

Nú var dagskránni riðlað all verulega þar sem við vorum svo fljótar í Draugasetrinu. Því var tekið upp á því að fara í ævintýragarðinn á Stokkseyri og látið Mary Ann stökkva á Trampolíninu þar..

Eftir Stokkseyri Skelltum við okkur í Keilu og Karíókí.. Þar mikil keppni milli mín (edrú) og Mary Ann (á rassgatinu) um síðasta sætið í Keilunni... Eftir stranga baráttu vann svo mary Ann... En þá var líka hlaupið í Karíóki... OG þeir sem þekkja vita að Rosie getur ekki látið svona græjur vera þó að hún sé blá edrú. Því var restin af hópnum í erfiðleikum að fá okkur Mary Ann til að hætt að syngja... Fólk var meira segja farið að hafa áhyggjur að því að við ætluðum ekki að gera neitt meira fyrir Mary Ann en að láta hana syngja í Karíókí..

Þar á eftir var farið í mat heim til Laurie ... Geggjaður matur og áfengi.. En eitthvað voru stúlkurnar þreyttar eftir daginn því enginn hafði orku í að fara í downtown Borg óttans heldur var haldið beina leið heim að sofa...

Frábær dagur í alla staði... Vona bara að önnur vinkona mín drífi sig í að giftast því maður verður að fá að gera þetta fljótlega aftur ;)

Jæja þá er það aftur að Grundó Dögum... Garðurinn á Grundargötu 86 var þéttsetinn tjöldum Við vorum með heimamönnum um rúmlega 20manns.. ekki slæmt það.. Mikil stemmning og þakka ég öllum fyrir helgina...

Jæja nú ætla ég að hætta þessu og vil þakka þér kæri lesandi fyrir að nenna að lesa þessa langloku mína... Þú hlýtur að vera mikill aðdáendi... Endilega kvittaðu í kommentið... Er farin að halda að engin komi hingað inn lengur....

Myndir koma um leið og ég nenni að setja þær í tölvuna... ætlið það verði nokkuð fyrr en eftir Verslunarmannahelgi!!

Rosie OUT!
P.s Vill einhver koma með mér í útileigu um helgina??? svar óskast sem fyrst

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Æi ég er bara að fara til Eyja... Á þjóðhátíð ég fer fer fer, þar feikna gaman er er er...er þú kemur með mér mér mér.... þú mátt s.s. koma til Eyja, ég fer ekki annað í útileigu þessa helgina :-) Kv. Arna

1:13 e.h.

 
Blogger Rosie said...

ohhh... Svo sæt í þér ezkan ;) Ætla að salta eyjaferð þetta árið... aldrei að vitað hvað maður gerir næsta ár ;) Takk samt fyrir... Gott að vita að EINHVER les enn síðuna hjá manni ;)

3:44 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Fylgir nokkuð orðabók með þessu bloggi hjá þér????

7:04 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home