Hola!!!

þriðjudagur, september 26, 2006

Öss Tjélla er ekki að standa sig núna!!!

Nei nei það er alveg ljóst...

Lítið að frétta.. Helgin var reyndar mjög góð.

Fór í heimsókn til Maríu Ósk og fengum við okkur Geðbilað góðan mat, Hún og Arna eru bara snilldar kokkar... og humm okey ég er góð í að standa og horfa á... Og hella rauðvíni og hvítvíni í glösin hehe ;)
Ætluðum svo á krákuna en þar var stoppað mjög stutt.

Laugardagurinn byrjaði rólega... Fór á Rúntinn með Sellu vinkonu... Það var mjög nice orðið allt of langt síðan við spjölluðum svona mikið saman, Dagurinn fór að mestu í það. Reyndar keyrðum við á mínum "fjalla"bíl í kringum Eyrarfjallið, Geri aðrir betur..

Um kvöldið var svo heljarinnar Afmælisveisla! Litli kútur bara orðinn 20 ára gamall. Partýið átti að hefjast um kl. 21:00 en Sumir mættu kl. 19:00, Þetta endaði líka í að vera c.a 11 tíma partý hehe.. Gaman af því.

Sunnudagurinn fór í að þrífa og taka til eftir partý ársins. Fórum svo og tókum okkur DVD.
Góðar myndir. Önnur var Green Street Hooligans... Algjör snilld Mæli með henni..
Mikið fjör.. Þegar ég fór á baðið og kíkti í spegilinn var andlitið og bolurinn minn allur út í blóði... alveg eins og dúddarnir í myndinni... Shit hvað ég hef lifað mig inn í myndina! Fékk líka þessar rosalegu blóðnasir!!!

Myndir af Tattúi segið þið
Hér er ein mjög léleg en þetta er það eina sem þið fáið þar til ég nenni að setja inn myndirnar út myndavélinni minni.. en hún fer að verða full
Elítan er að huga að því að skella Sér á rockstar tónleika á laugardaginn... Vona að það gangi upp hjá okkur...
Rosie Out