Hola!!!

fimmtudagur, desember 21, 2006

Jólin að koma


Já jólin nálgast óðum, Nú er 21. desember og allt að verða klárt ;)

Hann Raggi Afi minn á stór afmæli í dag - kallinn bara orðinn Sjötugur! Til hamingju með það Afi.

Já jólaundirbúningurinn er bara búinn að ganga nokkuð vel, hef samt örugglega aldrei verið svona hryllilega sein með jólagjafir, Sem betur ferð reddaðist það allt - Held það örugglega vona að ég sé ekki að gleyma neinum hehe ;)

Það er alltaf erfiðara og erfiðara að vakna á morgnanna til að mæta í vinnu. Hlýtur að vera þetta veðurfar og tala nú ekki um skammdeigið, Sem betur fer er þetta dimmasti dagur ársins það verður bara betra hér eftir - fingers crossed

Já það eru bara stórviðburðir í gangi þessa dagana, Litli bró, hann Rex(aka. Ragnar Smári) Útskrifaðist úr FSN í gær. Stór viðburður þar á ferð. Í tilefni þess ætlar kallinn að bjóða í veislu á morgun - ekki slæmt það þar sem systir hans er svo hryllilega skemmtana glöð hehe..

Þetta er nóg í bili

Hafði þið nú öll gleðileg jól.

Rosie

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home