Hola!!!

mánudagur, febrúar 27, 2006

NÝJAR MYNDIR

Ótrúlegt en satt.. Rosie er búin að skella myndum ... tékk it out!!!

Myndir frá því fyrir áramót!!! set inn lýsingar seinna ef ég nenni því

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Long time no ....

Öss febrúar kominn, janúar búinn og styttist óðum í mars.
Lífið viriðist bara fljúga áfram. Ekki er það leiðinlegt eða hvað?? Var á ættar-þorrablóti á föstudaginn sl. Nokkuð gaman að hitta ættingja sem maður hefur ekki séð í mörg ár eða hreinlega bara aldrei!! Maður tekur víst svona tímabil, sem kallast oftast gelgjan, sem maður mætir hreinlega ekki á neitt svona. Ég var svo sein þroska að ég er bara ný byrju aftur að mæta á ættarmót og því um líkt. En það er samt alltaf jafn gaman..
Jæja nóg af væmni. Afmæli/saumaklúbbur/innflutningspartý heppnaðist líka svona vel. Geggjað stuð og ALLIR ánægðir með íbúðina mína, ja eða voru svo hræddir við mig að þau þorðu hreinlega ekki að segja annað, önnur hver spurnig frá mér var víst eitthvað á þessa vegu: Hvernig finnst þér íbúðin, eða; Er íbúðin ekki flott? o.sv.frv. Þið þekkið þetta sem eruð Stoltir íbúða eigendur.
Annars er maður búin að vera veikur alla síðustu viku... Djöfullsins vesen segi ekki annað. Hor, hausverkur og beinverkir, ekki eitthvað sem ég mæli með!! Mætti því ekkert í ræktina í alla síðustu viku .... já já ég veit að það er rugl maður verður að vera duglegur!! mætti samt á mánudag og ætla mæta aftur í dag öll að koma til ;)
Laurie er bara að fara að skella sér til LA í skóla, ég er nátturulega rosalega öfundsjúk (sem er bara eðlilegt) ætlaði að fara með henni út og versla og sólbað o.sv.frv. en við töldum það vera miklu sniðugara að ég kæmi bara áður en hún kemur heim aftur! Þá er hún búin að kynnast umhverfinu og getur sýnt mér hvar er besta að verlsa e.g Rodio Drive Hollywood you know!!!
Jæja nóg um þetta
Svo á elskulegur bróðir minn afmæli í dag: Runólfur Til hamingju með daginn

Rosie OUT!