Gleðilegt Nýtt Ár!
Nú er nýtt ár gengið í garð ( bara láta vita ef þið hefðu misst af því)
Árið 2006 er liðið en það var fyrsta árið sem ég var ekkert í skóla síðan ég byrjaði í grunnskóla... Skrítið.
Nenni ekki að líta til baka á árið 2006 það var mjög fínt ár margt mjög skemmtilegt sem gerðist. En nú á að líta til framtíðar.
Árið 2007 er árið þar sem Rosie nær því að verða hálffimmtug og Faðir minn verður fimmtugur! Því nú ver og miður fyrir okkur gerist þetta strax í þessum og næsta mánuði!
Jebb Rosie á víst afmæli eftir rétt rúmlega 20 daga. Er líka bara hreinlega að velta því fyrir mér hvort maður bíður ekki bara í partý!! Aldrei að vita ;) fer að ákv. þetta fljótlega svo að liðið geti tekið frá daginn.
Ragnar og Guðrún Flutt í bæinn! Það er víst orðið officalt að ég er ein eftir í kotinu hjá Mömmu og Pabba!! Shit verð að fara að gera eitthvað í þessum málum. Drífa mig að byggja mér eitt stykki hús. hehe! Vonandi fer eitthvað að gerast í þessum málum hjá mér hehe
Ætla nú ekki að hafa þetta lengra. Enn og Aftur Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!
Sjáumst hress á nýju ári.
Rosie OUT


3 Comments:
Gleðilegt nýtt ár. :)
kv. Rut Rúnars
12:22 f.h.
Hæhæ, gaman að rekast á bloggið þitt :-)
Kv. Dagný Ósk frænka
7:27 e.h.
Hey með þessu áframhaldi þá held ég að þú fáir verlaunin "Bloggari ársins 2007" ;)
Sjáumst á morgun í saumó :)
10:00 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home