Hola!!!

þriðjudagur, mars 27, 2007

Já ég er enn á lífi!!!

En það sama er varla hægt að segja um tölvuna mína :( Nú er hafin söfnun fyrir nýrri vél!! Langar "ógeðslega" mikið í Makka (dónt esk mí væ) Fer vonandi fljótlega að fjárfesta í svoleiðis tryllitæki hehe... Tek við fjárfarmlögum hvenær sem er sólahringsins...

Þakka ykkur fyrir allar kveðjurnar á afmælisdaginn (betra seint en aldrei að þakka fyrir sig)

Sökum tölvuleysis hef ég ekki nennti að blogga... Nenni ekki að gera svoleiðis í vinnunni nema í undantekninga tilvikum sem þessum ;) myndir koma ekki á netið fyrr en ég fæ nýja tölvu... Margt hefur nú gerst sína í janúar. Nenni ekki að telja það upp hér...

Styttist óðum í páska - stefnan er tekinn á að skemmta sér ógurlega, ekki það að maður hefur ekki verið að gera það hingað til heldur bara því maður er svo íhaldsamur og fer ekki að breyta til núna hehe ;)

Allir búnir að kaupa sér nýjar íbúðir nema ég... allir að fá afhendar nýjar íbúir hægri vinstri nema ég... maður þarf víst að fara að gera eitthvað í þessum málum sínum....

En þar til næst skal reyna að láta styttir tíma líða á milli blogga... Þ.e.a.s ef það eru einhverjir sem eru enn að lesa þetta rugl í manni!!
Rosie OUT!!!!
P.s Gleymdi einu... Held bara að ég sé ástfangin....