Hola!!!

mánudagur, apríl 02, 2007

Heilsa 2007


Já já nú er komið að því að hrista hressilega af sér jóla- og áramótaslenið, kannski ekki seinna vænna. Reyndi nú að byrja hressilega í febrúar en það er ekki hverjum sem er bjóðandi að mæta eldsnemma á morgnana þegar það er enn svona dimmt úti. Nú er loksins farið að birta alla verulega og tjélla getur drifið sig á fætur og hent sér í ræktina.

Dagur 1 í Heilsu 2007 er sem sagt í dag. Dagurinn byrjaði sem sagt snemma var lagt af stað út í Ólafsvík kl. 05:30 sem kom svo í ljós að vera of seint. Á miðvikudaginn verður lagt af stað kl. 05:15 - En tjéllan er sem sagt byrjuð í einkaþjálfun með Kæju frænku. Núna kl. níu í morgun var ég orðin heldur þreytt og er ekki frá því að ég er farin að finna fyrir smá strengjum hehe. Þórey var ekki lengi að redda mér hálfum lítra af Red Kick til að vekja tjélluna við. Kom bara með brúsann færandi hendi. Hún ætlar sko að sjá til þess að maður gefist ekki upp hehe - það er bara gott mál.

Þetta verður samt mjög langur dagur er alla vega farin að sjá það. Maður endar örugglega á því að leggja sig í hádeiginu. Því strax eftir vinnu er ferðinni heitið aftur út í Ólafsvík í átakstíma þar með Mömmu, Sirrý og Maríu Ósk ásamt fleirum. Ég sver það ég verð orðin eins og súpermódel fyrir páska hehe páska eggið reddar því að maður verði bara ekki orðinn ofgrannur hehe.

Þegar við erum búin að fá okkur að borða og svoleiðis þá verður ferðinni heitið til Stykkishólms (þýðir ekkert að vera bara að fara í Ólafsvík) Því Snæfell og KR eru að fara að keppa 4 leikinn sinni í úrslitakeppni icelandexpressdeildarinnar en staðan er 2-1 fyrir Snæfell. Þar af leiðandi ef þeir vinna í kvöld eru þeir komnir í sjálfa úrslitakeppnina. Bara gaman af því.

Íþróttaálfurinn í mér er þessa dagana að missa sig. Lýsir það sér aðalega í auknum áhuga á hreyfingu og íþróttviðburðum hehe hef reyndar alltaf haft áhuga á íþróttaviðburðum en þetta er farið að verða full mikið af því góða hehe.. Fór meira segja upp á Akranes í gær að horfa á leik í Deildarbikarnum en Víkingur Ó. var að keppa við Reynir Sandgerði endaði sá leikur með jafntefli 2-2 litli kútur skoraði meira segja fyrsta markið ;)

Þannig ef einhver skellir sér á leik í sumar og sér kolvitlausa kellingu á kantinum er það örugglega ég. Ég get hreinlega alls ekki verið róleg og horft á leiki því ég lifi mig alltof mikið inn í þetta. En það geri þetta bara enn skemmtilegra hehe -
Jæja þetta er komið gott

Rosie OUT!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

nohhhh bara tvær færslur með minna en viku millibili :) Gangi þér vel í átakinu íþróttaálfur :)

11:26 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Já djö. líst mér vel á þetta vinan, um að gera að halda bara áfram :-) ég FER síðan að byrja í mínu átaki.....hehe. Kv. Arna

8:45 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home