Hola!!!

þriðjudagur, apríl 24, 2007

Heilsa 2007


Jæja Heilsa 2007 Gengur með eindæmum vel hehe ;) Reyni eins og ég get að éta mig ekki á gat og auðvitað hreyfa mig líka. Búin að vera í Einkaþjálfun núna í apríl og er það alveg að klárast. En um að gera að hætta ekki og er markmiðið sett á að halda áfram á fullum krafti.


Mikið búið að vera að gera um helgina. Var í borg óttans, A.KA. Reykjavík alla helgina að þræða húsgagnaverslanir. Var samt mjög dugleg að kaupa ekki allt sem ég sá - Stóðst sem sé freistinguna- Enda þó á því að kaupa mér 2 skópör og sundföt svo eitthvað sé nefnt hehe...


Það styttist óðum í að fá íbúðina afhenta bara vika eftir núna! Ég er eins og krakki á Afangadag, að bíða eftir að opna pakkana, er svo hryllilega spennt ;)
Jæja nóg í bili
Rosie OUT!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Var verið að splæsa í eitt stykki íbúð?
til hamingju með það. :)

11:08 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home