Heilsa 2007

Heilsa 2007 gengur eins og í sögu... En eins og í öllum góðum sögum eru hæðir og lægðir! Núna er til dæmis aðalmálið að annað hvort labba eða hjóla, búið að leggja bílnum nema í ýtrustu nauðsyn. Svo er auðvitað alltaf spurningin um hvað að nauðsyn og hvað ekki!
Íbúðin er öll að koma til! farið að líta vel út. Komnar gardínur og fleira sem því fylgir. Meira segja komin með símalínu og þá styttist í að maður fái aðgang að internetinu! þá getur maður póstað nokkrum myndum af herlegheitunum!
Kosningar nálgst óðum, allir að verða brjálaðir á auglýsingum og umræðum út um allt. En ég "fíla" þetta í tætlur, finnst fátt skemmtilegra en einmitt þetta.
Vil einmitt minna á X-Djamm í Krákunni í kvöld, opið hús, frítt inn, allir eldri en 18 ára velkomnir ;)
Endilega látið sjá ykkur!
Rosie OUT!


1 Comments:
hei ya DUGLEGA stelpa!!! ég mæti í kvöld er ekki alveg búin að ákveða hvað á að kjósa en ég er allavegana sjálfstæð kona!!! dugar það ekki hehehehe hlakka til að sjá þig, bjalla þegar ég er búin að vinna KNÚSSSSSS
8:29 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home