Hola!!!

föstudagur, maí 11, 2007

Myndir af íbúðinni



Var dugleg núna loksins! Er komin með netið heim til mín svo maður getur farið að setja inn myndir ;)

Setti sem sagt inn myndir af íbúðinni endilega tékkið á því ! Er svo montin að það hálfa væri nóg.
Senn líður að kosningum!
Þetta verða nú vægast sagt spennandi kosningar, það er held ég sé alveg nokkuð ljóst. Mikill spenningur í öllum. Get hreinlega ekki beðið eftir þessu öllu saman. Finnst þetta svo gaman. Þetta er samt öllu þægilegra núna heldur en í fyrra, þegar maður var sjálfur á kafi í þessu! Þó maður reyni að leggja sitt að mörkum núna.


Finnst reyndar verst að ég verð ekki hérna í Nafla Alheimsins á laugardagskvöldið, verð stödd í borg óttans. En hún Mary Ann vinkona mín verður 25 ára á morgun svo það er ekki hægt annað en að mæta í afmælisveisluna! Það verður nú ekki slæmt get ég sagt ykkur. Þó maður hefði líka vilja geta verið hér heima, maður getur víst ekki verið á tveimur stöðum í einu.


Gangið hægt um gleðinnar dyr á morgun. Brosum til hægri :D

Rosie Out!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vá hvað íbúðin er flott:) Æðislega huggulegt hjá þér og hlakka mikið til að kíkja inn í kaffi til þín í sumar, eða bjór;)hehe.

Ps. ég brosti til vinstri í gær:D

Knús og kossar

Kata

5:26 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir seinast skvís :) Góða skemmtun um helgina :)

4:41 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home