Maður verður að skrifa nokkrar línur þegar maður er komin í þessa keppni!
Byrjaði að skanna inn gamlar myndir í gær, Rosalega skemmtilegt að skoða gamlar myndir og rifja upp liðna tíma. Skannaði hátt í 100 myndir í gær byrjaði á því að kíkja í heimsókn til Maju frænku og fá myndir hjá henni og svo fór ég í myndalbúmin heima. Á nú eftir að skanna fleiri myndir þar, held bara áfram að vera dugleg í kvöld ;) Aldrei að vita nema maður skelli inn nokkrum vel völdum myndum hér við tækifæri, svona rétt til að bæta upp hvað ég hef verið löt við það síðastliðna mánuði.
Tók reyndar smá pásu á skönnun til hjálpa henni Örnu minni, fannst það lítið mál. En hún þurfti að færa Þvottavélina sína upp nokkrar tröppur. Tjélla hélt að það væri nú ekki mikið mál. En annað átti eftir að koma í ljós. ÖSSS Vélin var ekki léttari en 200kg! Arna varð að kalla til liðsauka og fékk Gísla á efrihæðinni til að hjálpa okkur. Við rétt náðum að færa hana upp stigann og inn í íbúð. Ég er ekki frá því að ég sé með verki í öllum liðamótum eftir þetta og ég sá Gísla haltra út úr íbúðinni, Þannig að þetta var kannski örlítið meira mál hehe En bara gaman að hjálpa náunganum.
Hörku stuð um síðustu helgi. Fór í mataboð til Mary Ann og Laurie var þar líka svaðalegt stuð enduðum niðri í bæ. Tópas Frændi fór eitthvað illa í Rosie svo hún var komin nokkuð snemma heim.
Næsta helgi verður tekin með stæl. Þá á að halda upp á hálffimmtugs afmæli Rosie. Jájá bara búin að fá Húsið lánað undir eitt stykki veislu. Vonum að sem flestir mæti ;)
Eníhú
Rosie OUT