Hola!!!

miðvikudagur, apríl 25, 2007

Heilsa 2007 og íbúðarmál

Já já heilsuátakið er langt komið með að drepa mig hehe ;) er að farast úr harðsperrum!! En þetta reddast vitna í fægt orðatiltæki "Bjúúútí is Pein"

Búin að fá íbúðina afhenta! Ekki lengi gert það ;) þau drifu sig bara að tæma og þrífa. Fékk hana seinnipartinn í gær! Rosa spennó, fór strax með múttu, Maríu Ósk, Örnu og Sirrý að kíkja á hana.

Fór svo á kosningafund með Sjálfstæðismönnum í Krákunni í gærkvöldi og ætlaði að reyna að flytja eitthvað eftir hann. En þar sem fundurinn var svo lengi varð eitthvað lítið úr því. Fór reyndar með pabba ( hann var ekki búinn að fá grand tour um daginn) og tók tvo kassa með ;)

Annars vegar jólagjöfin frá bræðrum mínum og mákonum. og Hins vegar kassi sem ég hafði fjárfest í Ikea ;)

Stefnan er tekin á að reyna að flytja sem mest af stóra dótinu í kvöld. Verð á fundi eitthvað á fimmtudagkvöldið svo það er best að klára þetta bara. Svo var meiningin að sofa fyrstu nóttina á föstudaginn, en þeir eru víst til fjár (ekki veitir af til að geta borgað af kvekendinu)

Eníhú nóg í bili.
Rosie OUT!!

þriðjudagur, apríl 24, 2007

Heilsa 2007


Jæja Heilsa 2007 Gengur með eindæmum vel hehe ;) Reyni eins og ég get að éta mig ekki á gat og auðvitað hreyfa mig líka. Búin að vera í Einkaþjálfun núna í apríl og er það alveg að klárast. En um að gera að hætta ekki og er markmiðið sett á að halda áfram á fullum krafti.


Mikið búið að vera að gera um helgina. Var í borg óttans, A.KA. Reykjavík alla helgina að þræða húsgagnaverslanir. Var samt mjög dugleg að kaupa ekki allt sem ég sá - Stóðst sem sé freistinguna- Enda þó á því að kaupa mér 2 skópör og sundföt svo eitthvað sé nefnt hehe...


Það styttist óðum í að fá íbúðina afhenta bara vika eftir núna! Ég er eins og krakki á Afangadag, að bíða eftir að opna pakkana, er svo hryllilega spennt ;)
Jæja nóg í bili
Rosie OUT!

fimmtudagur, apríl 19, 2007

Gleðilegt Sumar!!

mánudagur, apríl 16, 2007

Heilsa 2007


Já Já Heilsa 2007 gengur eins og í sögu. Ótrúlegt en satt! Tjéllan er rosalega dugleg að mæta í ræktina á morgnanna mánudag, miðvikudaga og föstudaga. En á víst að kíkja líka á þriðjudögum og fimmtudögum núna næstu vikurnar verður líka tekið á því þá ;) ekkert hægt að taka pásu ;) markmikið er að komast í nýju íbúðina múhaha..


Jebb jú hörd mí!! Ég er búin að fjárfesta í íbúð. Rosalega spennt fær hana afhenta 1.maí þannig það eru ekki nema 2 vikur í afhendingu... Er hreinlega að missa mig úr spenningi! Þetta verður stuð ;)
Var á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins um helgina. Það var ótrúlega gaman. Hefði aldrei trúað því nema að upplifa það sjálf. Nóg af fundum og kokteilboðum og ekki var það nú verra hehe ;)
Þetta verður spennandi kosningabarátta.


Annars er allt gott að frétta. Búin að setja inn nýjar gamlar myndir inn. Ætla ekki að hafa þetta lengra núna!


Rosie OUT

mánudagur, apríl 02, 2007

Heilsa 2007


Já já nú er komið að því að hrista hressilega af sér jóla- og áramótaslenið, kannski ekki seinna vænna. Reyndi nú að byrja hressilega í febrúar en það er ekki hverjum sem er bjóðandi að mæta eldsnemma á morgnana þegar það er enn svona dimmt úti. Nú er loksins farið að birta alla verulega og tjélla getur drifið sig á fætur og hent sér í ræktina.

Dagur 1 í Heilsu 2007 er sem sagt í dag. Dagurinn byrjaði sem sagt snemma var lagt af stað út í Ólafsvík kl. 05:30 sem kom svo í ljós að vera of seint. Á miðvikudaginn verður lagt af stað kl. 05:15 - En tjéllan er sem sagt byrjuð í einkaþjálfun með Kæju frænku. Núna kl. níu í morgun var ég orðin heldur þreytt og er ekki frá því að ég er farin að finna fyrir smá strengjum hehe. Þórey var ekki lengi að redda mér hálfum lítra af Red Kick til að vekja tjélluna við. Kom bara með brúsann færandi hendi. Hún ætlar sko að sjá til þess að maður gefist ekki upp hehe - það er bara gott mál.

Þetta verður samt mjög langur dagur er alla vega farin að sjá það. Maður endar örugglega á því að leggja sig í hádeiginu. Því strax eftir vinnu er ferðinni heitið aftur út í Ólafsvík í átakstíma þar með Mömmu, Sirrý og Maríu Ósk ásamt fleirum. Ég sver það ég verð orðin eins og súpermódel fyrir páska hehe páska eggið reddar því að maður verði bara ekki orðinn ofgrannur hehe.

Þegar við erum búin að fá okkur að borða og svoleiðis þá verður ferðinni heitið til Stykkishólms (þýðir ekkert að vera bara að fara í Ólafsvík) Því Snæfell og KR eru að fara að keppa 4 leikinn sinni í úrslitakeppni icelandexpressdeildarinnar en staðan er 2-1 fyrir Snæfell. Þar af leiðandi ef þeir vinna í kvöld eru þeir komnir í sjálfa úrslitakeppnina. Bara gaman af því.

Íþróttaálfurinn í mér er þessa dagana að missa sig. Lýsir það sér aðalega í auknum áhuga á hreyfingu og íþróttviðburðum hehe hef reyndar alltaf haft áhuga á íþróttaviðburðum en þetta er farið að verða full mikið af því góða hehe.. Fór meira segja upp á Akranes í gær að horfa á leik í Deildarbikarnum en Víkingur Ó. var að keppa við Reynir Sandgerði endaði sá leikur með jafntefli 2-2 litli kútur skoraði meira segja fyrsta markið ;)

Þannig ef einhver skellir sér á leik í sumar og sér kolvitlausa kellingu á kantinum er það örugglega ég. Ég get hreinlega alls ekki verið róleg og horft á leiki því ég lifi mig alltof mikið inn í þetta. En það geri þetta bara enn skemmtilegra hehe -
Jæja þetta er komið gott

Rosie OUT!