Hola!!!

föstudagur, maí 11, 2007

Myndir af íbúðinni



Var dugleg núna loksins! Er komin með netið heim til mín svo maður getur farið að setja inn myndir ;)

Setti sem sagt inn myndir af íbúðinni endilega tékkið á því ! Er svo montin að það hálfa væri nóg.
Senn líður að kosningum!
Þetta verða nú vægast sagt spennandi kosningar, það er held ég sé alveg nokkuð ljóst. Mikill spenningur í öllum. Get hreinlega ekki beðið eftir þessu öllu saman. Finnst þetta svo gaman. Þetta er samt öllu þægilegra núna heldur en í fyrra, þegar maður var sjálfur á kafi í þessu! Þó maður reyni að leggja sitt að mörkum núna.


Finnst reyndar verst að ég verð ekki hérna í Nafla Alheimsins á laugardagskvöldið, verð stödd í borg óttans. En hún Mary Ann vinkona mín verður 25 ára á morgun svo það er ekki hægt annað en að mæta í afmælisveisluna! Það verður nú ekki slæmt get ég sagt ykkur. Þó maður hefði líka vilja geta verið hér heima, maður getur víst ekki verið á tveimur stöðum í einu.


Gangið hægt um gleðinnar dyr á morgun. Brosum til hægri :D

Rosie Out!

mánudagur, maí 07, 2007

Kosningar 2007

Já, ég varð aðeins að koma þessu á framfæri ;)
Það er próf á netinu sem fólk getur tekið til að hjálpa sér við ákvörðunina um hvað það eigi að kjós.
Ég varð auðvitað að athuga hvaða flokk ég ætti að kjósa ( ekki það að ég væri í vandræðum með að ákveða mig) en auðvitað kom það í ljós að mín ákvörðun var rétt en hér eru niðurstöðurnar:

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 93.75%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 12.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 23%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%

Ég er mest hissa á því hvað ég skora hátt hjá hinum flokkunum! Ég leyfi mér að ákvarða þetta skor út frá því að þetta eru málefni sem þessir flokkar hafa "apað" eftir Sjálfstæðisflokkum hehe ;)
Eníhú
Rosie OUT

föstudagur, maí 04, 2007

Heilsa 2007


Heilsa 2007 gengur eins og í sögu... En eins og í öllum góðum sögum eru hæðir og lægðir! Núna er til dæmis aðalmálið að annað hvort labba eða hjóla, búið að leggja bílnum nema í ýtrustu nauðsyn. Svo er auðvitað alltaf spurningin um hvað að nauðsyn og hvað ekki!


Íbúðin er öll að koma til! farið að líta vel út. Komnar gardínur og fleira sem því fylgir. Meira segja komin með símalínu og þá styttist í að maður fái aðgang að internetinu! þá getur maður póstað nokkrum myndum af herlegheitunum!


Kosningar nálgst óðum, allir að verða brjálaðir á auglýsingum og umræðum út um allt. En ég "fíla" þetta í tætlur, finnst fátt skemmtilegra en einmitt þetta.


Vil einmitt minna á X-Djamm í Krákunni í kvöld, opið hús, frítt inn, allir eldri en 18 ára velkomnir ;)


Endilega látið sjá ykkur!


Rosie OUT!