Sumarfrí
Nú er sumarið komið. Sólin farin að láta sjá sig ansi oft svo maður er ekki alveg að nenna að kveikja á tölvunni þegar maður kemur heim úr vinnunni! Því hef ég tekið þá ákvörðun að taka blogg frí eins og allir frægu og mest lesnu bloggarnir... maður má víst ekki vera minni en þeir hehe ;)Annars er allt gott að frétta. Mákona mín Hún Guðrún Hrönn átti afmæli á laugardaginn og var smá game hjá henni fámennt en góð mennt... Svaka gaman... Ótrúlegt en satt gleymdi ég myndavélinni minn í Grundó Sitý þannig að engar myndir voru teknar.
Stefna tekin á útilegu um næstu helgi... Ætla að muna eftir myndavélinni núna hehe..
Þó svo ég sé búin að taka mér smá frí á bloggi getur vel verið að ég setji inn myndir við tækifæri. Læt þá vita af því ;)
Hafið það gott í sumar og gangið hægt um gleðinnar dyr.
Rosie OUT!



